Þingvellir | Sunset in Mosfellsbær | Þingvellir, Arnarfell | Wintermoon over Helgafell |
---|---|---|---|
Wild blueberries | Þingvellir, Peningagjá | Faxaflói, sailing | Strokkur... resting |
Strokkur... exploding, take one. | Strokkur... exploding take two.. | Strokkur... exploding take three... | Strokkur... full blast |
Strokkur erupting | Gullfoss the face in the watherfall | Gullfoss | A small geysir |
A geysir | Geysir, the one and only | Þingvellir church | Brúará river |
Grimsnes, fresh wather | Night sky at sommertime | Reykjanesviti lighthouse | Horse basking in the spring sun |
Þingvellir riders in Almannagjá | Þingvellir Flosagjá | Reykjavík sunset | Sunset over Leirvogsárósar |
Þingvellir riders in Almannagjá | Grímsnes, river | Grímsnes river | Stokkseyri memorial |
Stokkseyri | Reykjanes | Reykjavik sunset | Reykjanes |
Þingvellir | Grímsnes, a hut in winter | Stokkseyri, canoes | Laugarvatn |
Sunset in Mosfellsbær | Þingvellir, Arnarfell | Wintermoon over Helgafell | Wild blueberries |
Þingvellir, Peningagjá | Faxaflói, sailing | Strokkur... resting | Strokkur... exploding, take one. |
Strokkur... exploding take two.. | Strokkur... exploding take three... | Strokkur... full blast | Strokkur erupting |
Gullfoss the face in the watherfall | Gullfoss | A small geysir | A geysir |
Geysir, the one and only | Brúará river | Grimsnes, fresh wather | Night sky at sommertime |
Reykjanesviti lighthouse | Horse basking in the spring sun | Þingvellir riders in Almannagjá | Þingvellir church |
Þingvellir Flosagjá | Reykjavík sunset | Sunset over Leirvogsárósar | Þingvellir riders in Almannagjá |
Grímsnes, river | Grímsnes river | Stokkseyri memorial | Stokkseyri |
Reykjanes | Reykjavik sunset | Reykjanes | Grímsnes, a hut in winter |
Stokkseyri, canoes | Laugarvatn |
Photos Anna Björk
LIKE ALL GREAT TRAVELERS, I HAVE SEEN MORE THAN
I REMEMBER AND REMEMBER MORE THAN I HAVE SEEN
Benjamin Disraeli
ÁTT ÞÚ SAMLEIÐ MEÐ OKKUR
Ef þú ert ferðaskipuleggjandi, ferðaskrifstourekandi, hótel- eða gistihúsarekandi, nú eða átt veingahús eða bóndabýli í ferðaþjónustu, er annt um náttúru landsins og með áhuga á sjálfbærni í ferðaþjónustu gætir þú átt samleið með okkur.
Við munum markaðssetja og selja ýmisa þjónustu og vörur til ferðamanna á heimasíðu okkar ecotourist.is
Það eru engar takmarkanir á því hver þjónustan eða framleiðslan er, önnur en að hún verður að vera umhverfisvæn og hlíta þeim reglum sem við setjum okkur í grunnreglum okkar.
Ef þú hefur áhuga á samstarfi, hafðu þá samband við okkur á info@ecotourist.is eða samskiptaforminu hér tilhliðar.
Þær kröfur sem við gerum til okkar og okkar samstarfsaðila um náttúruvernd og sjálfbærni
Umhverfislega
-
Flokka allt sorp og endurvinna. Best er að endurvinna sem mest af sorpi á staðnum, en það sem ekki er hægt að endurvinna heima við á að senda í endurvinnslu sem næst notkunarstað.
-
Kolvetnisjafna tæki sem valda kolvetnismengun.
-
Ganga um landið þannig að engin ummerki sjáist eftir athafnirnar. Þar sem nauðsynlegt er að setja upp mannvirki til að þjónusta gesti og gæta öryggis þeirra skal það gert á þann hátt að það trufli upplifun sem allra minnst. Mannvirkin skulu þannig gerð að auðvellt sé að fjarlægja þau á þann hátt að ekki sjáist ummerki á eftir. Þannig geti komandi kynslóðir ákveðið að ganga til baka sýnist þeim svo. Gera betur, bæta landið sé það hægt, laga gömul ummerki, hreinsa upp syndir feðranna og samferðamanna sem ganga illa um.
-
Fræða gesti / viðskiptavini um náttúruvernd og þær sérstöku og viðkvæmu aðstæður sem hér eru
-
Hljóðvist er mikilvæg í upplifun landsins, þess skal því gætt að valda ekki óþarfa hávaða og ónæði fyrir þá sem eru að upplifa kyrrð náttúrunnar. Eftir því sem ferðamennskan eykst verður þessi þáttur mikilvægari þar sem kyrrðin er hluti af þeirri upplifun sem Ísland hefur upp á að bjóða.
-
Ljósmengun getur eyðilagt upplifun um kvöld og nætur.
-
Nota endurnýtanleg efni eins og nokkur kostur er við starfsemina.
-
Huga að matar mílum við innkaup á kosti, versla við nær samfélagið þar sem það er hægt.
-
Sjálfsagt er að spara raforku og vatn þó að nóg sé af hvorutveggja á Íslandi. Vatnsorkuver, dælustöðvar og varmaorkuver valda bæði sjónmengun og sumar loftmengun og breyta lífríki þar sem þau eru staðsett.
Samfélagslega
-
Starfa í sátt við nær samfélagið og gæta þess að raska ekki jafnvægi þess því til skaða.
-
Gefa upplifun gestsins dýpt og forðast allt sem vekur tilfinningar um hraða afgreiðslu. Nógur tími, slaka, það liggur ekkert á.
-
Gæta fylsta öryggis, fylgja markmiðum um núll skaða þegar kemur að slysum á viðskiptavinum og starfsmönnum.
-
Gefa af sér til samfélagsins, t.d. með því að styrkja björgunarsveit þess svæðis sem unnið er á, standa fyrir náttúrverndarverkefnum o.þ.h.
-
Hafa jákvæð áhrif á sveitastjórnir og hvetja nær samfélögin á hverjum stað til að sinna náttúrvernd og vera sjálfbær.
Fjárhagslega
-
Starfsemin þarf að vera hugsuð til framtíðar, þannig að hún byrtist ekki allt í einu, hreinsi upp landgæðin og fari og skilji samfélagið eftir í sárum.
-
Sjálfbær fyrirtæki eiga að skila hagnaði til eigenda, starfsmanna og samfélagsins.
Við bjóðum alla þá sem farið hafa í gegnum gæða- og umhverfisferli Vakans velkomin til okkar ásamt þeim sem hafa ISO vottun, Svaninn, Earth Check eða aðra umhverfisvottun. Við bjóðum einnig alla þá sem hyggja á slíka vottun og stefna að henni velkomin að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Við hvetjum fyrirtæki, stór og smá að nýta sér þá möguleika sem Vakinn bíður upp á, en Vakinn er niðurgreidd þjónusta af hinu opinbera og hugsuð sem styrkur til greinarinnar. Ferlið hjá þeim er þrepaskipt í brons, silfur og gull þannig að hægt er að byrja á neðsta þrepinu og stefna á hin síðar þegar aðstæður leifa. Hægt er að kynna sér ferlið hjá þeim á www.vakinn.is gögnin eru opin þannig að hver sem er getur kynnt sér þau og byrjað að vinna eftir þeim.
Finna má gátlista Vakans hér: